Auglýsing

heima er best

15. ágúst 2008 klukkan 09:48
Ég er komin heim eftir þessa yndislegu ferð.

Ég ætla að nota þessa síðu fyrir myndirnar mínar því myspace-ið mitt er ekki aaalveg að virka. Glatað dæmi.

jah sjet

27. júlí 2008 klukkan 16:32
Ég hef nákvæmlega ekkert að gera núna þannig ég hef ákveðið að blogga. Undan farin vika er búin að vera æði og það er svo margt skemmtilegt framundan.

Á föstudaginn kláraði ég þessa löngu vinnuviku. Þá fór ég og hitti au pair vinkonur mínar hérna og við skelltum okkur á fete de geneve. Rosa tónleikar í gangi niðrí bæ og við sátum þar og höfðum mjög gaman. Verst að þær eru flestar á heimleið núna í vikunni eða þá í frí einhvers staðar um Evrópu. En þetta var mjög gaman og ég elska hvernig stemmingin er hérna um helgar. Svo allt öðruvísi menning hérna heldur en heima. Mér finnst æðislegt að njóta þess hvað er gott veður hérna alltaf og sitja úti við vatnið og hafa það kósý með vinkonunum.
Laugardagurinn fór í sólbað í Bains de Paqiue sem ég gjörsamlega elska, þessi staður er mesta snilld sem hefur verið fundin upp. Um kvöldið hitti ég svo stelpu sem er íslensk og býr hérna, nýflutt. Við ætluðum að kíkja niðrí bæ á fete de geneve og vorum að rölta þar eitthvað kom þá ekki þessi hellidemba, VÁ! Þetta var algjörlega svona bíómyndarigning. Við hlupum þarna eftir götunum í leit að skjóli, hentum okkur í strætó og beint heim. Þegar við komum heim var eins og við hefðum hoppað í vatnið eða farið í sturtu, aldrei verið svona blaut eftir rigningu. Þannig við ákváðum að fara bara í kósý föt og taka kósy kvöld á þetta. Virkilega gaman.
Í dag var nú meira ævintýrið, hitti hana Söndru aftur og við fórum á Bains de Paqiue í sólbað. Þar er eitthvað svona gaur sem þú getur hangið í og runnið svona út í vatnið (veit ekki alveg hvernig ég á að lýsa þessu) Ég er buin að horfa á þetta í hvert skipti sem ég fer þarna en þori aldrei að fara þar sem þú byrjar svo hátt uppi og þetta er bara hálf hræðilegt. Við ákváðum svo að drífa okkur, tók mig svona 10 min að mana mig upp í að hoppa af pallinum og renna þarna niðrí vatnið og SJET adrenalínið fór sko á fullt. Þetta var magnað! Svo hoppuðum við af háum pöllum eða ég, hún þorði ekki. Ekkert smá gaman, leið eins og svona 10 ára gömlum krakka aftur. Svo fengum við okkur bara ís og kósy.

Í vikunni ætla ég svo í bátsferð um vatnið, útibíó og svo er þessi hátíð enn í gangi hérna. Bara gaman!

En ég ætla að skella mér í sturtu og 13 dagar! Vúhú

17 dagar

23. júlí 2008 klukkan 09:53
Ég kem heim eftir 17 daga, 9 ágúst, sjet þetta líður hratt.

Á föstudaginn seinasta ákvað ég að breyta miðanum mínum og koma viku fyrr heim. Ég var rosalega pirruð þennan dag og vill þakka mömmu kærlega fyrir að nenna að hlusta á mig röfla mjög lengi og mér leið mun betur eftir á. Þessar mömmur, hvað gera þær ekki fyrir mann, ég veit alla vegana ekki hvar ég væri án minnar, hún er best!

Alla vegana um helgina tók ég því voðalega rólega, var eitthvað hálfslöpp á laugardeginum (þreytt eftir vikuna?) og á sunnudeginum fór ég bara í sólbað og eitthvað kósý. Ég ákvað svo að byrja þessa viku rosalega jákvæð eins og mamma sagði mér að gera og viti menn hún er búin að vera mjög góð hingað til og verður bara betri. Ég er pínu þreytt að vera að vinna svona mikið en Nói er búin að vera voða stilltur því við erum komin með rosalega góða rútínu og ég held að hann sé mjög sáttur með það, loksins einhver regla hjá honum. Það er bara búið að vera sól og blíða undan farið og ég þarf kannski að fara að gera meira af því að vera í sólbaði, mér veðrur alltaf bara svo rosalega heitt eftir svona korter, ég kafna bara. Annars á mánudaginn fórum við í parísarhjól þar sem það er eitthvað svona hátíð hérna niðrí bæ og verður hún alveg þangað til ég fer en hápunkturinn er um verslunarmannahelgina, það verður örugglega mjög gaman. Svo er ég bara búin að vera með hann í garðinum hérna, rölta um bæinn og njóta lífsins. Og já borða ís, það er eitthvað áhugamál sem ég og Nói eigum sameiginlegt, okkur finnst ís alveg hrikalega góður.

Núna um helgina er ég svo að fara að hitta vinkonur mínar hérna og við ætlum að gera eitthvað mjög skemmtilegt. Ég ætla að sko að nýta þessa 17 daga sem eftir eru í þessari yndislegu borg.

Ætlaði bara að henda smá svona inn þar sem ég er ekki búin að vera nægilega dugleg að blogga undan farið. Annars sakna ég ykkar eins og alltaf og ég hlakka ótrúlega til að hitta ykkur öll aftur, stutt í þetta.

LoveLoveLove

sviss 4

17. júlí 2008 klukkan 10:54
var að setja inn myndir Hlæjandi

jama

14. júlí 2008 klukkan 12:15
Heil og sæl kæru félagar!

Ný vinnuvika að byrja en ótrúlega góð helgi að klárast.

Sem sagt seinasta miðvikudag var ég í fríi um daginn og þá fór ég á "ströndina" hérna í sólbað, ég elska þessa strönd eða hvað þetta nú er. Þurfti að vinna um kvöldið en kíkti síðan út eftir vinnu.
Fimmtudag og föstudag var ég að vinna og föstudagskvöldið var bara sex and the city og súkkulaðiát, búin á því eftir vikuna.
Á laugardaginn fór ég að versla (verð að hætta þessu, engir peningar til lengur) og svo hitti ég Au pair vinkonur mínar hérna og það var lake parade sem er svona hátíð meðfram vatninu, tónlist út um allt og skrítið fólk alls staðar, þetta svipar svoldið til gay pride heima. Það var rosalega gaman og um kvöldið kom hellirigning þannig þegar að ég kom heim var eins og ég hefði farið í sturtu, þvílík snilld! Í gær var ekkert spes veður þannig ég tjillaði bara og fór í bíó um kvöldið á Kung fu panda, HAHA ein besta mynd sem ég hef séð, vá hvað ég hló.

Dagurinn í dag er ekkert að gera sig í veðrinu. Fór og lagaði símann minn, jeyjeyjeyjeyjey. Get loksins sent sms aftur! Þetta var farið að vera svo heví pirrandi en núna hef ég tekið gleði mína á ný.

Svalur

En ég vona bara að það komi magnað veður á morgun, sem á að gerast og þá ætla ég í sund og tana og skemmtilegt, ætla sko að vera skööööggalega tönuð þegar ég kem heim, hehe gott markmið.
Núna er ég semí bara að bíða eftir að hann vakni svo við getum farið að kaupa ís og svo erum við að fara að horfa á stubbana! vúhú, eða meira svona hann horfa á það og ég tjilla í tölvunni.

SAKNA YKKAR SVO og btw ég er búin að vera hérna í 7 vikur, sjet hvað þetta líður hratt.

Maturinn minn

11. júlí 2008 klukkan 15:00
Heey ég ákvað að segja ykkur hérna hvað ég borða svona dagsdaglega því það er tja, rosalega spes.

  • Frosties er í miklu uppáhaldi þar sem það finnst valla á Íslandi lengur
  • Lindor mjólkursúkkulaði VÁ besta súkkulaði í heimi
  • Maltesears
  • Twix
  • Súkkulaðibúðingur sem er franskur, OF GÓÐUR
  • Hafragraut
  • ooog Grjónagraut
  • Snakk með osti mmmmmm
  • Og núna ristaðbrauð með létt og laggott smjöri eftir að það kom til mín

RÆÐA hollustuna mína hérna!?

Eygló í heimsókn og VInnA

08. júlí 2008 klukkan 06:36
Undan farnar 2 vikur er ég búin að vera að vinna mjög mikið. Vona að þetta fari að minnka eitthvað þar sem þetta er eiginlega aðeins of mikið. En á fimmtudaginn kom Eygló til mín í heimsókn.
Ekkert smá gaman að fá hana og slátur og súkkulaði og smjör, almennilegt smjör! mmmmm.
Þegar að hún kom eldaði ég grjónagraut og fengum við okkur ekta íslenska máltíð.
Á föstudeginum þurfti ég að passa smá þannig við fórum bara í lest sem keyrir hérna um bæinn, til að sýna túristum bæinn. Svo þurfti Eygló náttlega að versla og þá datt ég í þann pakka líka en það er nú allt í lagi. Kíktum svo út um kvöldið.

Á laugardeginum vöknuðum við tiltölulega snemma og drifum okkur niður við vatnið í sólbað, fyrsta skipti sem ég fer og syndi í þessu vatni og ég get sagt ykkur það að ef það er gott veður og ég í fríi er ég að fara að tjilla þarna, aðeins of nice staður! Svo héldum við áfram að versla og lifa lífinu vel bara. Möns var svo næst og tilheyrandi magaverkir aaah, alltaf gott að fá Eygló sína, það þýðir möns!

Jæja á sunnudeginum voru bara brjálaðar eldingar og rigning þannig lítið hægt að gera þar sem ALLT er lokað á sunnudögum hérna. Þannig það var bara Bold and the Beautiful laaangt fram í tímann og shiidh þetta er svo spennandi. Get ekki beðið eftir næstu þáttum. Ég veit við erum lúðar en það er bara gaman.

Í gær fór hún svo heim, grátleg stund. Og núna hefst enn ein vinnuvikan. Ég fæ reyndar frí á miðvikudeginum en þarf að passa um kvöldið, get ekki beðið eftir næstu helgi!!

ALLA vegana sakna ykkar svoldið mjög og hlakka til að sjá ykkur!!

Ferđasagan frá París

26. júní 2008 klukkan 07:49
Komin heim frá París. Sú ferð var æði.

Byrjum á því að ég tók lest um hádegið á þriðjudaginn til Parísar. Allt í góðu með það nema eftir smá stund kemur einhver kínverji inn og á sætið á móti mér. Sest hann þar og tekur án grín ALLT fótaplassið þannig næstu 2 tíma þarf ég að sitja í einhverri kremju með lappirnar og hann skildi ekki skilaboðin með það að ég var alltaf að rekast í hann, horfa illilega á hann og horfa á lappirnar hans með hneykslunarsvip, hann náði því ekki að hann var ókurteis að taka allt plássið!
Svo var ég komin til Parísar og þá voru 5 tímar í að Steinunn kæmi þannig ég ákvað að hefja skoðunarferð mína, þar sem ég var nú búin að merkja all nokkra staði á kortið mitt. Jæja hófst gangan mín að garði sem heitir Place de Vosges. Þaðan lá leið mín niður að Notre Dame kirkjunni og vá hvað þetta er falleg kirkja! Jæja svo rölti ég þarna um og í gengum LATÍNU hverfið, hehe (bara fyrir þig Edda mín) og endaði göngu mína í Jardin de Luxemburg. Okey þarna var ég semí búin á því eftir alla þessa göngu þannig ég ákvað að taka leigubíl upp að Sacre Coeur. Ég lét leigubílstjórann fara pínu spes leið því ég vildi endilega keyra í gegnum Luvre safnið og fram hjá óperuhúsinu sem hann gerði.
Alla vegana svo kom ég að Sacre Coeur og VÁ! útsýnið þarna yfir París var magnað. Þaðan lá svo leið mín niður að Moulin Rouge og ég labbaði í gengum ógeðslegustu götu sem ég hef labbað í gegnum á ævi minni, framan á öllum búðum og skemmtistöðum voru blikkandi ljós sem flest sögðu "SEX" og eitthvað, úff ég án gríns hljóp næstum því þarna í gegn en hvað gerir maður ekki fyrir að sjá Moulin Rouge.

Þá hringdi Steinunn og hún var komin þannig ég hoppaði upp í leigubíl og til hennar. Hún var í mjög fyndinni íbúð haha en guð hvað ég var glöð að hitta íslenska vinkonu mína og bara fólk! Jæja við gerðum okkur fínar og tókum leigubíl að Effel turninum. Vorum svo eitthvað þar að skoða okkur um og röltum svo um hálfa París í leit að einhverjum stað til að setjast niður, gekk ekkert alltof vel en á endanum fundum við stað og fengum okkur kokteil í ljótu glasi. Það var rosalega kósý allt saman.

Daginn eftir vöknuðum við ferskar eldsnemma. Drifum okkur út og fengum okkur morgunmat. Jæja, þá var komið að Effel turninum og óþægindatilfinningin í löppunum varð rosalega. Að taka lyftuna þarna upp var eins og að vera í rússíbana eða eitthvað, mjög óþæginlegt. Annars hef ég sjaldan verið eins hamingjusöm og í gær þegar ég var á toppi Effel, eitthvað sem mig hefur alltaf langað en þetta var GEÐVEIKT! Alltof fallegt. Þegar niður var komið röltum við að Sigurboganum sem er með mesta klessu hringtorg í kringum sig og þaðan löbbuðum við niður Champs-Elyseés og enduðum á Luvre safninu og ég sá Mónu Lísu. Skemmtilegt safn þetta Luvre og ég og Steinunn náðum að skemmta okkur konunglega þar. Eftir það vorum við rosalega búnar á því þannig við fundum okkur kósý stað og settumst niður.

Þá var það að halda heim aftur um kvöldið og það var nú meira ævinrtýrið! Jæja Sindri og Steinunn fylgdu mér út á Metro stöðina og ég plantaði mér þar í metro alveg salla róleg á leiðinni heim. Ég ákvað svona að líta á klukkan gá hvað væri langt þangað til að lestin mín færi, 17 MINUTUR og ég átti eftir að labba svoldið að lestarstöðinni þegar ég kæmi út úr metróinum og finna lestina mína og allt. Þannig ég sat þarna í metronum að fara á taugum! Loks þegar hann kom á mína stoppustöð gjörsamlega spretti ég upp og út og alveg að lestarstöðinni, ég held ég hafi aldrei hlaupið svona hratt á ævinni, leið semí eins og ég væri í þáttunum þarna sem þau eru að hlaupa út um allan heim sem ég man ekki hvað heitir í augnablikinu. Alla vegana kom ég þarna á lestarstöðina og fann lestina mína og var ég þá ekki í seinasta vagninum! Týpískt þannig ég hleyp út allan rampinn þarna og inn í lestina og akkurat þegar ég stíg inn í lestina lokast hurðin og lestin fer af stað! Shidh hvað ég var einum of heppin. Svo sest ég í sætið mitt kósveitt og búin á því eftir öll þessu hlaup og var nú alveg nógu illt í löppunum fyrir eftir allt labbið í París. En sem betur fer voru fáir í lestinn þannig ég hafði nóg af sætum til að leggja mig.

Svo sá ég það ógeðslegasta sem ég hef seð lengi þegar ég var að bíða eftir strætó frá lestarstöðinni til að komast heim. Ég sá konu sem var án gríns gangandi beinagrind. Ég hef séð grannt fólk og allt það en shit ekki svona, þetta var ógeðslegt, lappirnar á henni voru án gríns jafn mjóir og úlnliðurinn minn. Greyið konan og allir þarna störðu bara á hana, ég hef aldrei séð annað eins, ég vissi ekki að það væri hægt að vera svona bara ekki neitt, ég er í SJOKKI.

Jæja þetta er komið gott.
Er að henda inn myndum sem voru margar.

Sakna ykkar!

París tomorrow!

23. júní 2008 klukkan 06:19
Á morgun eru komnar 4 vikur, ji minn þetta líður hratt.

Undan farna daga er búið að vera brjálað heitt, eiginlega of heitt. Þannig seinustu dagar eru búnir að einkennast af sólbaði, ísáti og einhverju í þá áttina.
Um helgina var svo einhver music festival hérna, reyndar var flest allt á frönsku þannig það var nú ekkert brjálað gaman, en gaman. Svo fer ég oftast á fanzone-ið þegar það eru leikir með vinkonu mínum hérna, þetta er búið að vera nokkurn vegin lífið mitt seinast liðna viku.

En ég er að fara til Parísar á morgun og hitti Steinunni þar! Það verður æði. Kem með ferðasögu þaðan en ég verð bara í 2 daga.

Ég er að setja inn nýjar myndir, veiveivei!

Sakna ykkar OF mikið

Frekkland, Bern, Interlaken, Grindelwald, Lauterbrunnen og fluttningar

16. júní 2008 klukkan 13:09
Viðburðaríka og skemmtileg helgi búin.

Á föstudaginn vaknaði ég frekar snemma og dreif mig að leigja hjól. Svo hjólaði ég til Frakklands sem mér finnst nokkuð töff. Hah, ekki getur maður bara hjólaði í annað land á Íslandi. Gaman að því. Um kvöldið fór ég að hitta nokkrar au-pair stelpur hérna og við kíktum niðrí bæ á fanzone-ið og eitthvað skemmtilegt. Elín er loksins búin að eignast vinkonur KLAPP KLAPP.

Á laugardaginn var lagt af stað í road-trip. Eftir um 2 tíma keyrslu vorum við komnar til Bern sem er einmitt höfuðborg Sviss. Ég verð nú að segja að Bern er ekki nærrum því eins heillandi og skemmtileg borg og Geneva enda líka mun minni. Við skoðuðum borgina og ég verslaði pínu og svona. Um kvöldmatarleitið héldum við til Interlaken sem er eins og nafnið gefur að kynna lítill bær sem er í miðju vatni þarna, rosalega fallegt og fjöll allt í kring. Þetta er samt rosalegur túristastaður þar sem ég heyrði ekki eitt orði í þýsku þarna heldur töluðu allir ensku. Við fundum okkur svo eitthvað hostel þarna. Undir hostelinu var svo þessi fíni skemmtistaður þannig við skemmtum okkur alveg stórkostlega vel.

Mér finnst alltaf jafn fyndið að þegar ég er að kynnast útlendingum hérna fæ ég alltaf sömu viðbrögðin þegar að ég segi að ég sé frá Íslandi, oftast í svona 80%-90% tilvika er þau eitthvað í þessa áttina "woooow, I have never met someone from Iceland, that's so cool!" Mjög fyndið
OG líka haha, ég var að lesa eitthvað blað hérna og sé risa fyrirsögn "The happiest people in the world live in Iceland" og í kjölfarið fylgdi 3 blaðsíðna grein um hversu hamingjusamir íslendingar væru. Þessi grein var nú ekki alveg sönn en þetta var mjög fyndið.

Á sunnudeginu vöknuðum við svo og fórum að fá okkur að borða og ég smakkaði það besta sem ég hef smakkað lengi, snakk með osti. Það verður samt að vera sérstakt snakk og mumu osturinn hérna, GOD þetta var svo gott. Svo héldum við áfram með road-tripið og fórum til Grindelwald sem er fallegur og lítill bær og svo var haldið til Lauterbrunnen.

Ég kom heim um 8 leitið og þá var farið í það að pakka saman dótinu mínu og flytja. Ég er rosalega sátt með nýja herbergið og allt hérna. ÆÐI, æði.

En ég er að setja inn myndir frá helginni undir Sviss 2.

Sakna ykkar allra SVO mikið :*  CIAO

elínösp

  • Nafn: Elín Ösp
  • Stađur: Mosfellsbćr
  • Atvinna: Nemi